Fundur á Sauðárkróki um atvinnu og íbúðamarkaði
Opinn fundur um atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðarmarkaðar í landsbyggðunum verður haldinn fimmtudaginn 19. október á Kaffi Krók á Sauðárkróki kl. 12.00. Að fundinum standa SSNV, Byggðastofnun, HMS, Lóa nýsköpunarstyrkur og Samtök iðnaðarins. Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði, stafræn byggingarleyfi, nýsköpunarstyrki, hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu og þau lánaúrræði sem standa til boða bæði hvað varðar rekstur og íbúðaruppbyggingu.
Dagskrá
- Áskoranir og tækifæri á Norðurlandi vestra? Katrín M. Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV
- Staða íbúðauppbyggingar Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri hjá HMS
- Stafræn byggingarleyfi Hugrún Ýr Sigurðardóttir, verkefnastjóri hjá HMS
- Lánastarfsemi Byggðastofnunar Hrund Pétursdóttir, forstöðumaður Fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar og Guðbjörg Óskarsdóttir, sérfræðingur hjá Byggðastofnun
- Nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina Sigurður Steingrímsson, sérfræðingur hjá HVIN
- Aukum hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu Friðrik Ágúst Ólafsson, viðskiptastjóri hjá SI
Húsið opnar kl. 11.30 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn. Fundarstjóri er Guðmundur Haukur Jakobsson formaður stjórnar SSNV.