Fréttasafn



  • vaxtarsprotinn

30. apr. 2010

Vaxtarsproti ársins - tilnefningar

Vaxtarsprotinn árið 2010 verður veittur við hátíðlega athöfn í Grasagarðinum í Laugardal 5. maí næstkomandi klukkan 8:30. Tilgangurinn með Vaxtarsprotanum er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa um leið aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja. Um er að ræða samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins,/SSP, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknamiðstöðvar Íslands.

Tilnefnt er í tveimur flokkum. Fyrirtækin Menn og mýs og Hafmynd eru tilnefnd í flokki fyrirtækja með ársveltu á bilinu 100-1000 milljónir króna. Valka og Nox Medical eru hins vegar tilnefnd í flokki fyrirtækja með ársveltu á bilinu 10-100 milljónir króna.

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra mun afhenda viðurkenningar og Vaxtarsprotann 2010. Við sama tækifæri verður eitt fyrirtæki skráð í úrvalsdeild íslenskra hátæknifyrirtækja, en fyrirtækið náði þeim merka áfanga á síðasta ári að velta yfir einum milljarði króna.

Dagskrá:

  • Tónlist og léttar morgunveitingar
  • Skráning sprotafyrirtækis í úrvaldsdeild íslenskra hátæknifyrirtækja
  • Greinargerð dómnefndar og afhending viðurkenninga

Fundarstjóri: Svana Helen Björnsdóttir, formaður SSP.