Fréttasafn



  • undirskrift-NGI

16. okt. 2012

Ný samtök norrænna leikjaframleiðenda stofnuð

Í gær voru stofnuð ný samtök norrænna leikjaframleiðenda – Nordic Game Institute. Fulltrúar samtaka leikjaframleiðenda í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Íslandi skrifuðu undir stofnsamninginn í ráðhúsi Reykjavíkur.
 

Formaður hinna nýju samtaka er Klaus Hansen frá The Danish Producers Association. 

Að undirskrift lokinni bauð Reykjavíkurborg til móttöku þar sem borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, og formaður NGI ávörpuðu samkomuna. Í máli bæði borgarstjóra og ráðherra kom fram að þeir hafa hvor um sig þó nokkra reynslu af tölvuleikjum. Borgarstjóri heldur meiri en hann myndi sennilega flokkast með alvöru tölvuleikjaspilurum meðan ráðherra hefur látið sér nægja að grípa í einn og einn leik með börnum sínum.

Stofnun samtakanna markar tímamót enda um ört vaxandi iðnað að ræða. 330 norræn leikjafyrirtæki eiga aðild að samtökunum, árleg velta þeirra er um 360 millj. EUR og hjá þeim starfa rúmlega 4000 manns. 

Markmiðið með samnorrænum samtökum er að gæta hagsmuna norrænna leikjaframleiðenda, skapa öflugan samstarfsvettvang og stuðla að uppbyggingu þessa ört vaxandi iðnaðar.

Meðal verkefna er að standa fyrir norrænni leikjaráðstefnu árlega, byggja upp viðskiptasambönd og efna til kynningar á alþjóðlegum vettvangi auk þess að efna til samvinnu við annan skapandi iðnað, ss. kvikmyndaiðnað, sjónvarp og tónlistariðnað. 

Stofnun samtakanna hefur verið í undirbúningi undanfarið ár og á rætur að rekja til Nordic Game Program sem Norræna ráðherranefndin hefur rekið. Það verkefni var hins vegar tímabundið og er senn á enda. Það er því mikilvægt að fá sterk samtök til að vinna að þessum málum í samstarfi við ráðherranefndina og lykilráðamenn í hverju landi.

IGI eru samtök 10 tölvuleikjafyrirtækja innan raða Samtaka iðnaðarins. Þau voru formlega stofnuð í september 2009 og eru samstarfsvettvangur tölvuleikjaframleiðenda á Íslandi. Hlutverk samtakanna er að stuðla að auknu samstarfi fyrirtækja, menntastofnana og stjórnvalda um þekkingaruppbyggingu og tækni sem einkennir greinina.