Fréttasafn



28. maí 2021 Almennar fréttir Mannvirki Samtök rafverktaka

Ráðstefna um útboðsmarkað rafverktaka í beinu streymi

Samtök rafverktaka, SART, boða til ráðstefnu sem verður í beinu streymi í dag föstudaginn 28. maí. kl.14.00-15.30. Ráðstefnan sem ber yfirskriftina Útboðsmarkaður rafverktaka - Hvert stefnum við? er haldin í framhaldi af aðalfundi SART en er öllum opinn sem áhuga hafa á málefninu.

Stórstígar breytingar hafa orðið síðustu ár á útboðsmarkaði rafverktaka en hafa þessar breytingar orðið til góðs? Á fundinum verður leitast við að fá svör við þessari og fleiri spurningum sem brenna á löggiltum rafverktökum.

Ráðstefnustjóri er Kristján Daníel Sigurbergsson, framkvæmdastjóri SART.

Dagskrá

  • Hjörleifur Stefánsson, formaður SART
  • Björg Ásta Þórðardóttir, yfirlögfræðingur SI
  • Gestur Pétursson, framkvæmdastjóri Veitna
  • Guðjón L. Sigurðsson, rafmagnsiðnfræðingur og ljósvistarhönnuður IALD, Liska

Pallborðsumræður

  • Jóhanna Klara Stefánsdóttir sviðsstjóri Mannvirkjasviðs SI
  • Björgvin Víkingsson, forstjóri Ríkiskaupa
  • Ólafur Steingrímsson, teymisstjóri, innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar
  • Eiríkur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Fagtækni.

Til að nálgast streymið er hægt að skanna inn QR-kóðann hér fyrir neðan eða nálgast streymið hér:

https://youtu.be/5CYqhdI98MY

 

Sart-radstefna

 

MyndirÞátttakendur í dagskrá eru Hjörleifur Stefánsson, formaður SART, Björg Ásta Þórðardóttir, yfirlögfræðingur SI, Gestur Pétursson, framkvæmdastjóri Veitna, Guðjón L. Sigurðsson, rafmagnsiðnfræðingur og ljósvistarhönnuður IALD, Liska, Björgvin Víkingsson, forstjóri Ríkiskaupa, Ólafur Steingrímsson, teymisstjóri, innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar, Eiríkur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Fagtækni, og Jóhanna Klara Stefánsdóttir sviðsstjóri Mannvirkjasviðs SI. Ráðstefnustjóri er Kristján Daníel Sigurbergsson, framkvæmdastjóri SART.