Fréttasafn



10. mar. 2015 Almennar fréttir

Verðlaunasjóður iðnaðarins ítrekar beiðni um ábendingar um verðlaunahafa árið 2015

Stjórn Verðlaunasjóðs iðnaðarins auglýsir eftir ábendingum um verðuga verðlaunaþega sjóðsins árið 2015. Verðlaunin verða afhent í maí.

Verðlaunasjóður iðnaðarins var stofnaður af Kristjáni Friðrikssyni í Últíma, eiginkonu hans frú Oddnýju Ólafsdóttur og fjölskyldu árið 1976. Sjóðurinn starfar samkvæmt stofnskrá frá árinu 1996 í samstarfi við Samtök iðnaðarins. Tilgangur sjóðsins er að örva til dáða á sviði iðnaðarmála og jafnframt vekja athygli á þeim afrekum á því sviði.

  • Verðlaun sjóðsins eru auk peningaupphæðar, sérstakur verðlaunagripur og innrammað verðlaunaskjal. 
  • Ekki er tekið við umsóknum um verðlaun úr sjóðnum, en sjóðsstjórn getur auglýst eftir ábendingum eins og nú er gert.
  • Í samþykktum sjóðsins er eftirfarandi leiðbeining um val á verðlaunaþega:
  • Verðlaunin skal gjarnan veita fyrir uppfinningar sem líklegar teljast til að koma íslenskum iðnaði að gagni.
  • Verðlaunin má einnig veita einstaklingum og fyrirtækjum fyrir happadrjúga forystu í uppbyggingu iðnaðar, hvort sem er til innanlands nota eða til sölu erlendis eða fyrir forystu á sviði iðnaðarmála almennt.
  • Verðlaunin má veita fyrir sérlega vel gerða iðnaðarframleiðslu t.d. sem fram kynni að koma á iðnsýningum eða kaupstefnum.
  • Verðlaunin má einnig veita fyrir hönnun, sem er sérlega vel heppnuð að dómi sjóðsstjórnar.

Stjórn sjóðsins hvetur félagsmenn Samtaka iðnaðarins og aðra til að koma með ábendingar um verðuga verðlaunahafa sem fallið geta vel að einu eða fleiri atriðum í framangreindum leiðbeiningum.

Ábendingum má koma á framfæri við Davíð Lúðvíksson hjá Samtökum iðnaðarins í síma 591 0100 eða á tölvupóstfangi david@si.is fyrir 26. maí n.k.